23.05.2011 09:22

Aðalfundur Skógræktarfélags Neskaupstaðar

 Verður haldinn miðvikudaginn 25 maí n.k.

kl. 20:00 í fundarsal Egilsbúðar

Venjuleg aðalfundarstörf

Fræðsluerindi

Kaffi og meðlæti

Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka með sér nýja félaga

Stjórnin


27.04.2011 17:01

Björgum trjánum ofan Urðarteigs til 25. maí

Til íbúa Norðfjarðar

25. apríl ár hvert er dagur umhverfisins sem tileinkaður er Sveini Pálssyni (1762) fyrsta íslenska náttúrufræðingnum  en hann hvatti sérstaklega til aðgerða gegn skógareyðingu á Íslandi.

Eins og bæjarbúar vita eru að hefjast framkvæmdir við snjóflóðavarnir (garð) undir Tröllagili. Þar sem garðurinn kemur er töluverð skógrækt sem mun að mestu eyðast í framkvæmdunum. Því vill Skógræktarfélag Neskaupstaðar bjóða íbúum að taka upp tré fyrir ofan merktar (bleikar) stikur  á svæðinu fyrir ofan gömlu plastverksmiðjuna á Urðarteignum og út undir Urðarteig 12.

Hægt verður að taka upp tré til 25. maí n.k.

Minnum á að ganga vel um svæðið.

Ef frekari upplýsinga er þörf hafið samband við Benta í s- 8951664,  Egil í s-8661171,  Önnu í s-8977803,  Sibbu s-8931583.

Stjórn Skógræktarfélags Neskaupstaðar


  • 1

Vafraðu um

Félagið

Nafn:

Skógræktarfélag Neskaupstaðar

Um:

Viltu gerast félagi? Sendu okkur póst með upplýsingum um nafn, kennitölu og heimilsfang.

Tenglar

Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 13
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 22130
Samtals gestir: 6969
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 01:41:37