    <language>is</language>
Skýrsla stjórnar frá 25. maí 2011
      <description>Við þökkum þeim sem mættu á aðalfundinn okkar sl. miðvikudag. Hér er hægt að lesa skýrslu stjórnar sem Anna Bergljót Sigurðardóttir, formaður félagsins flutti á fundinum. </description>
Aðalfundur Skógræktarfélags Neskaupstaðar
      <description>  Verður haldinn miðvikudaginn 25 maí n.k.  kl. 20:00 í fundarsal Egilsbúðar Venjuleg aðalfundarstörf Fræðsluerindi Kaffi og meðlæti Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka með sér nýja félaga Stjórnin</description>
Björgum trjánum ofan  Urðarteigs til 25. maí
      <description>Til íbúa Norðfjarðar  25. apríl ár hvert er dagur umhverfisins sem tileinkaður er Sveini Pálssyni (1762) fyrsta íslenska náttúrufræðingnum  en hann hvatti sérstaklega til aðgerða gegn skógareyðingu á Íslandi. Eins og bæjarbúar vita eru að hefjast framkvæmdir við snjóflóðavarnir (garð) undir Tröllagili. Þar sem garðurinn kemur er töluverð skógrækt sem mun að mestu eyðast í framkvæmdunum. Því vill Skógræktarfélag Neskaupstaðar bjóða íbúum að taka upp tré fyrir ofan merktar (bleikar) stikur  á svæðinu fyrir ofan gömlu plastverksmiðjuna á Urðarteignum og út undir Urðarteig 12.  Hægt verður að taka upp tré til 25. maí n.k. Minnum á að ganga vel um svæðið. Ef frekari upplýsinga er þörf hafið samband við Benta í s- 8951664,  Egil í s-8661171,  Önnu í s-8977803,  Sibbu s-8931583. Stjórn Skógræktarfélags Neskaupstaðar </description>
Úrslit í ljósmynda- og teiknimyndasamkeppni
      <description>Skógræktarfélagið ákvað á vordögum að efna til ljósmyndasamkeppni og teiknimyndasamkeppni þar sem viðfangsefnið var Skógrækt eða Hjallaskógur. Nemendur í Nesskóla tóku þátt í myndasamkeppninni og mátti þar skila ýmiss konar myndum, .s.s teiknuðum, máluðum, klippimyndum o.fl.  Sigurverkið átti Álfdís Helga Þórsdóttir í 9. EÞK og hlaut að launum pizzuveislu fyrir allan bekkinn simn. Á heimasíðu Nesskóla má sjá frétt um úrslit í teiknimyndasamkeppninni og hér má sjá verkin sem komust í úrslit. Sex tóku þátt í ljósmyndasamkeppninni og var það William Geir Þorsteinsson sem tók sigurmyndina. Her má sjá allar myndirnar sem sendar voru inn í keppnina. Formaður Skógræktarfélags Neskaupstaðar afhendir Willa verðlaun fyrir 1. og 2. sætið íljósmyndasamkeppninni. Myndirnar eru til sýnis í sundlaug Neskaupstaðar. Katrín Hulda átti myndina í 3. sæti og Willi myndirnar í 1. og 2. sæti. </description>
Engin jólatré úr Hjallaskógi í ár!
      <description>Þvi miður verður ekki hægt að fella tré í Hjallaskógi þetta árið. Rauðgrenið hefur verið mikið grisjað undanfarin ár og ef haldið verður áfram að fella jólatré í skóginum þarf að fara töluvert ofar en gert hefur verið.Í haust var byrjað að setja niður plöntur í sérstakan lund fyrir jólatré í reitina á milli limgerða ofan við Nesbakka. Þar er mjög fallegt svæði með limgerðum og fallegum barrtrjám og öspum allt um kring. Jólaskógur getur líka vel nýst sem útiskógur, en lengi vel var það hugmynd Aðalsteins Halldórssonar að gera þarna útivistasvæði og trjásafn. Við þökkum bæjarbúum fyrir frábæra þátttöku og skemmtilegar jólastundir í skóginum undanfarin ár og bendum á að hægt er að nálgast jólatré hjá Björgunarsveitinni Gerpi</description>
Skemmtileg smálykkja
      <description>Fyrir ofan borðið sem stendur við göngustíginn er skemmtileg smálykkja inn í lúpínureitinn sem þar er. Nú er búið að bæta aðeins við hana inneftir og upp. Ef sú leið er farin kemur maður í furureitinn að innanverðu. Þar má finna sólberja og stikkilsberjaplöntur sem fóru niður í fyrrasumar og eru þrælsprækar.</description>
Að breyta fjalli og bjarga trjám
      <description>Margir hafa spurst fyrir um hvort og hvenær megi taka tré á svæðinu ofan Urðarteigs sem fer undir varnargarð. Samkvæmt upplýsingum frá bæjaryfirvöldum hefur Framkvæmdasýslan lokið öllum undirbúningi útboðs vegna varnargarðsins en sá þáttur málsins hefur enn ekki verið afgreiddur frá nefnd um opinberar framkvæmdir í fjármálaráðuneytinu. Auk þess er beðið eftir endanlegri staðfestingu umhverfisráðuneytis á aðalskipulaginu. Útboðsferlið er að lágmarki 8 vikur eftir að ákvörðun liggur fyrir. Þannig að ljóst er að aldrei getur orðið að framkvæmdum fyrr en í fyrsta lagi í haust. Trjám verður því ekki bjargað fyrr en í fyrsta lagi í haust og að öllum líkindum fyrr en næsta vor. Fylgist með á heimasíðunni.  </description>
Vinnukvöld 14 júlí
      <description>Jæja kæru félagar og áhugafólk þá er komið að vinnukvöldi hjá okkur í Hjallaskógi og nú á að taka á því. Hittingur kl.18-20:30 svona ca, við ætlum að saga ,snyrta ,klippa ,moka bera á við og ýmislegt annað.Við viljum kalla til vini Hjallaskógar til að taka til hendinni og leggja hönd á plóg.Fínt væri að taka með sér einhver áhöld við verðum með flest sem á þarf að halda.Fínt að taka með sér nesti eða eitthvað á grillið jafnvel.Gerum okkur glaðann dag og verjum honum saman.Kær kveðja úr Hjallaskógi.Anna Bella.</description>
Ljósmyndasamkeppni Skógræktarfélagsins 2009
      <description>Skógræktarfélag Neskaupstaðar hefur ákveðið að efna til ljósmyndasamkeppni frá júní til september 2009.   Viðfangsefnið er Hjallaskógur. Við hvetjum alla áhugasama ljósmyndara til að taka þátt!  Reglur eru eftirfarandi:1. Ljósmyndin verður að vera tekin á umræddu tímabili, júní 2009 til og með 30. september 2009. (Vinningshafi verður að geta sýnt fram á að myndin sé tekin á umræddu tímabili með því að senda inn upprunalega mynd sem inniheldur EXIF upplýsingarnar gildar og óbreyttar)2. Einungis er tekið við stafrænum myndum á .jpg formi3. Stærð myndar skal takmörkuð við 3 MB4. Hverjum keppanda er leyfilegt að senda inn þrjár myndir5. Myndum skal skilað á netfangið hjallaskogur@gmail.com fyrir miðnætti 1. október 2009   6. Myndefnið skal vera Hjallaskógur.7. Myndir sem sendar eru í keppnina skulu ekki hafa birst áður, hvorki á netinu né annars staðar.  8. Myndir sem sendar eru í keppnina skulu ekki sendar í aðra myndakeppni.   9.Heimilt er að senda inn bæði óbreyttar og unnar myndir.  10. Skógræktarfélag Neskaupstaðar áskilur sér rétt til að nýta allar ljósmyndir sem sendar eru inn í keppnina án endurgjalds í starfi sínu, t.d. í fréttabréf og á heimasíðu félagsins. Myndir verða þó aldrei afhentar þriðja aðila til notkunar. Verðlaun eru:   1. sæti 25.000 krónur2. sæti 15.000 krónur3. sæti 10.000 krónurSkógræktarfélagið mun skipa 3ja manna dómnefnd sem verður kynnt síðar. </description>
Að laga útsýni
      <description>Fórum um daginn og tókum til í Lerkireitnum efst í skógræktinni. Við söguðum burt dauð tré og tókum aðeins til í þeim sem eru lifandi. Við byrjuðum á þessu í fyrrasumar og það þarf að skreppa þarna uppeftir 2-3 ferðir í viðbót og þá er þetta frá. Það er slatti af lifandi lerki þarna og þær plöntur eru mun fallegri eftir að sagað hefur verið frá þeim. Þessi tiltekt er vel sjáanleg neðan úr bæ, ekki síst úr sjúkrahúsglugganum, en það var einmitt tilgangangurinn, að laga útsýnið þaðan. Stikkilsberja og sólberja plöntur sem fóru niður í fyrrasumar eru mjög sprækar og blómgunin á sólberinu lofar góðu. Er að skreppa í smá frí en stefni að því að stinga niður nokkrum hælum með grænu teipi til að merkja nýju leiðina upp með læknum áður en ég fer. Kannski næ ég líka að ryðja hana aðeins betur. annars bíður það betri tíma.</description>
Ný leið
      <description>Við erum sífellt að reyna að gera skógræktina aðgengilegri, bæði með stígagerð og eins að liðka til fyrir gönguleiðum. Ein slík leið er í vinnslu núna. Best er að byrja á Gulri leið (sjá gamla gestabókarfærslu) þ.e. fara upp í gegnum Furulundinn við brúna efst á göngustígnum. Ef Gulu leiðinni er fylgt upp á opna svæðið þar sem lækurinn með stíflunni er, þá er hægt að fylgja þeim læk alveg uppúr að dauða lerkinu og uppúr skógræktinni. Þessi leið er hrá ennþá en vel fær og verður rudd betur og merkt á næstunni. Ef fólk kýs að byrja ofanfrá þá er að fara að dauða lerkinu efst í skógræktinni og fylgja síðan ytri læknum niðreftir. Góða skemmtun!!!!!!!!!!!</description>
Nú er sumar
      <description>Um leið og skógurinn er að vakna úr vetrardvala þá lifnar yfir heimasíðunni. Egill Arnaldur sagði þetta í gestabókinni þann 18. maí sl. "Fór á Laugardag og sagaði slatta af trjánum sem brotnuðu í vetur. Skógurinn er þokkalega þurr og fallegur. Berjaplöntur sem plantað var í fyrrasumar eru sprelllifandi og komnar af stað. Það er margt sem stendur til að gera í skóginum á næstunni. Áhugasamir geta komið á framfæri hugmyndum eða boðið fram krafta sína til vinnu í gegnum netfangið. Ég vil endilega hvetja fólk til að fara út fyrir stígana en við gerðum átak í fyrra til að gera ræktina aðgengilegri og ætlum að halda því áfram í sumar. Kveðja Egill Arnaldur"</description>
Góður aðalfundur
      <description>Aðalfundurinn sem haldinn var á miðvikudag fyrir rúmri viku lukkaðist vel. Mæting var nokkuð góð og Jenný Jörgensen kom ný inn sem aðalmaður í stjórn í stað Arnars Guðmundssonar. Pétur St. Arason kom inn sem nýr varamaður í stjórn. Einar Gunnarsson skógfræðingur var með fróðlegt erindi um Hjallaskóg og skógrækt almennt á Íslandi og ekki sviku veitingarnar hjá Frú Lú Lú. Anna Bergljót Sigurðardóttir formaður flutti skýrslu stjórnar:   "Gott kvöld kæru félagar og velkomin hér í kvöld á kaffihúsið Frú lú lú.  Ef við snúum okkur fyrst að að smávægilegum breytingum í stjórn.Hér gefa allir kost á sér áfram nema Arnar Guðmundsson og í stað hans gefur Jenný Jörgensen kost á sér . Nú lítum um farinn veg og sjáum að nú er liðið ár framkvæmda og dugnaðar eins og til stóð.Þar er helst að nefna vel lukkaða afmælishátíð það sem frumkvöðlarnir voru heiðraðir og afhentur þar skólalundur til afnota í Nesskóla. Jólatrjásala var á sínum stað og var mjög gaman hjá okkur og vorum við heppin með veður og fengum marga gesti. En skemmst er frá því að segja að við sjáum fram á skort á jólatrjám næstu misserin en við erum einmitt að vinna að því að búa til jólatrjáalund og uppeldisstað. Við erum búin að setja niður töluvert af nýjum tegundum og berjarunnum og verður áframhald á því. Stígurinn okkar var kláraður síðast liðið sumar og efnið sem féll til í grisjun var kurlað á staðnum og sett í stíginn og erum við mjög sátt við hann eins og hann er. En sárin eftir vélar á eftir að skoða betur og jafnvel að sá í sumstaðar. Grillsvæði var opnað á afmælishátiðinni og erum við að leggja lokahönd á það og vinna í smáatriðum og að meta hvernig það kemur undan vetri, og von okkar er að almenningur noti svæðið sér til yndisauka og útiveru.    Nú hefur verið tekin ákvörðun um að kaupa hús af Verkmenntaskóla austurlands sem mun nýtast okkur sem salernisaðstaða og geymsla. En þetta er háð því að fá leyfi frá viðeigandi stöðum. En að öðru við höfum séð það að skógurinn er orðinn of opinn á vissum stöðum vegna grisjunar og höfum við verið að missa stór tré í miklum vindum. Höfum við því ákveðið að planta rifsi og öðrum harðgerðum lágum plöntum í jaðra til að nota sem vindbrjóta, en þetta hefur víða gefist vel.  Nú einnig höfum við verið að búa til gönguleiðir ofar í skóginum sem eru nettir stígar en ekki þjónustustígar eins og þessi stærri. Nú ef við víkjum að Tröllagilsframkvæmdum þá erum við að reyna fá dagsetningar á framkvæmdum og erum við að reyna að fá helgi til að veita almenningi kost á því að fara og bjarga trjám sem óhjákvæmlega verða undir vegna framkvæmda á þessu svæði.En skógræktarfélagið sér ekki fram á færa og nýta þessi tré annarsstaðar. Svo er uppi möguleiki að taka þátt í atvinnuátaki í samvinnu við bæinn og er þetta verkefni hjá skógræktarfélagi Íslands og er verið að vinna í þessum málum. En þetta verður þá tekjuöflun hjá okkur til að standa undir stígagerð og áburðagjöf og annað í þeim dúr. Ekki er séð fram á mikla styrki þetta árið en við eigum smávegis ósótt ennþá. En stefnan hjá okkur er að hafa höfuðstólinn okkar sterkann og nánast ósnertann til öryggis. En að lokum vil ég fyrir hönd stjórnar segja að við reynum að vinna í þökk við fyrri meðlimi og frumkvöðla þó að auðvitað séu ólíkar skoðanir og hugmyndir á köflum. En ég tel að við getum verið stolt af því sem við höfum gert og munum gera og njótum þess að vera skógaráhugafólk. Enn og aftur vil ég þakka þeim sem plöntuðu fyrstu trjánum hér í hlíðinni en við getum rétt séð fyrir okkur muninn ef hér væri enginn skógur.     Með þökk fyrir okkur.  Anna Bergljót Sigurðardóttir".  </description>
Aðalfundur Skógræktarfélagsins
      <description>Aðalfundur Skógræktarfélagsins miðvikudaginn 13. maí kl. 20:00.Haldinn á Frú Lú Lú Venjuleg aðalfundarstörf. Einar Gunnarsson skógfræðingur verður með myndasýningu frá Hjallaskógi, gamalt og nýtt. Kaffi og meðlæti. Nýjir félagar velkomnir. Áhugasamir um að setjast í stjórn setji sig í samband við formann, Önnu Bellu í síma: 897-7803 eða sendi póst á hjallaskogur@gmail.com </description>
Stemmning í skóginum
      <description>Þökkum þeim sem komu í skóginn og sóttu sé tré um sl. laugardag. Þetta var sannarlega skemmtilegur dagur og ekki spillti veðrið fyrir. Ennþá fjölgar þeim sem koma í skóginn og sækja tré. Stjórn Skógræktarfélags Neskaupstaðar óskar félögum og velunnurum félagsins gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári. Þökkum samfylgdina á afmælisárinu og sérstaklega öllum þeimsem lögðu leið sína í skóginn okkar á afmælisdaginn. </description>
Sækjum okkur jólatré í Hjallaskóg um helgina
      <description>Laugardaginn 20. desember nk  milli kl. tólf og tvö verður hægt að koma í Hjallaskóg og velja sér og saga niður draumajólatréð. Félagar úr björgunarsveitinni og stjórnarmennSkógræktarfélagsins verða á staðnum.-boðið verður upp á piparkökur og kakó.Þetta er í fjórða sinn sem fólki gefst kostur á að sækja sér jólatré í Hjallaskóg og hefur aðsóknin aukist ár frá ári. Við hvetjum bæjarbúa og aðra til að fjölmenna í skóginn með fjölskyldum og vinum, finna sér sitt uppáhaldsjólatré, bragða á piparkökum og sötra kakó.Í fyrra voru jólasveinar að þvælast í skóginum, hver veit nema þeir láti sjá sig aftur?</description>
Fyrsta hindberið
      <description>Hef lítið komist uppeftir vegna tíðra langhlaupa uppá síðkastið.Hef þó verið aðbrasa við að reyna að þurrka göngustíginn með stungureku og v onandi er þetta komiðí lag við grillsvæðið en þar er búið að vera ansi blautt í rigningunum.Það hafabrotnað nokkur tré í storminum um daginn:stór birkitré við nýja stíginn neðst,nokkurgömul lerkitré þar sem kurlstígarnir mætast og svo það sem er nú sérkennilegast tvöstór grenitré í grenilundinum neðst að innanverðu.Fólk er hvatt til að kíkja áður enég æði af stað með keðjusögina.En það verður ekki alveg strax.Hélt áfram að ryðjanýja göngustíginn og það er ekki mikið eftir.Át fyrsta hindberið um daginn:það var ílúpínureitnum við göngustíginn efst.Hindberjaplantan er frek og kannski er hægt aðetja henni á lúpínuna???Berið var eldrautt,dísætt og með himnesku norðfjarðarbragði.Kveðja Egill</description>
Afmælistegundir
      <description>Var að planta gjafatrjánum sem viðfengum.Gljásýrena frá Dísu í Laufskálanum fórniður rétt hjá Mýrarlerkinu sem Bjarni Alla heldur svo uppá.Við gamla göngustíginnfyrir neðan grenilund sem þar er.Garðahlynurinn sem Einar Gunnarsson kom með fráSkógræktarfélagi Íslands fór niður við grillsvæðið,utar og neðan við stíginn.OrriHrafnkelsson frá Skógræktarfélagi Austurlands,Sigurður Blöndal og Bjarki Sigurðsson frá Skógrækt ríkisins færðu okkur þrjú tré:Ask(frá Múlakoti) sem fór niður ofan viðþjónustustíginn innarlega.Hvítgreni(frá Nýfundnalandi)það er ofan við stóragrenilundinn neðst og innst í ræktinni.Reydarhlynur(??) eða Acer Rubrum sem er hjáHvítgreninu ofan við grenilundinn,hjá þjónustustígnumm.Askurinn og  hlynurinn fengusvolítið kalk.Gaman að hafa fengið þessi mögnuðu tré og þá ekki síst Askinn hiðhelga tré norrænna manna.Þurfum bara að fá fleiri eintök ef þessi klúðrast.Beint uppaf nýja stígnum með kurlinu er búið að saga fyrir nýjum göngustíg semliggur upp að gamla göngustígnum.Við erum byrjuð að ryðja hann og fólk hvatt til aðkíkja.Kveðja Egill</description>
Kærar þakkir
      <description>Þá er vel lukkuð afmælisveisla að baki.Þrátt fyrir smá annmarka á hljóði virtust flestir gestir mjög ánægðir með hátíðina. Veðrið var eins og best verður á kosið en síðan þá má segja að hafi rignt. Við teljum að um 250-300 manns hafi verið í skóginum. Meðal annars var undirritaður samningur milli Skógræktarfélagsins og Nesskóla sem felur í sér að skólanum er úthlutaður lundur í skóginum sem skólinn má nota og útfæra eftir eigin höfði til hvers konar útikennslu.  Er það von stjórnar félagsins að þetta efli áhuga og vitund nemenda fyrir umhverfi sínu og náttúru og verði skemmtileg og góð viðbót við öflugt skólastarf í Nesskóla.HEIÐURSFÉLAGARF.v. Stefán Þorleifsson, Haukur Ólafsson, Jón S. Einarsson, Kristín Lundberg, Ásdís Ólsen, Lilja Bjarnadóttir, Unnur Jóhannsdóttir og Unnur Bjarnadóttir. Tólf stofnfélagar voru heiðraðir í tilefni afmælisins og mættu níu þeirra í skóginn til að taka við heiðursskjalinu.  Mjög gaman var að sjá þennan hóp samankomin.  Stefán Þorleifsson mælti fyrir hönd stofnfélaga sem voru heiðraðir og kom fram í máli hans að líklega hafi bjartsýnustu menn hafi ekki séð fyrir þann mikla árangur sem  starf félagsins hefur borið sl. sextíu ár. Félaginu bárust margar góðar gjafir og kveðjur, m.a. frá Blómabúðinni Laufskálanum, Skógræktarfélagi Íslands, Skógrækt ríkisins, Skógræktarfélagi Austurlands og Fjarðabyggð.  Þökkum við kærlega þann hlýhug sem félaginu var sýndur. Stjórn félagsins er mjög ánægð hvernig tókst til og vill þakka öllum sem hafa hjálpað við að gera þetta raunverulegt, bæði þeim sem hafa í sumar og liðin sumur hjálpað til við að snyrta skóginn og jafnframt þeim sem aðstoðuðu okkur á sjálfri hátíðinni, við að afgreiða pylsur og skreyta skóginn.  KÆRAR ÞAKKIR ALLIR</description>
Tapað - Fundið
      <description>Blá 66°N flíspeysa í stærð 8, merkt GHS og blágræn húfa með sjóræningjamynd urðu eftir í skóginum í gær. Þeir sem kannast við lýsinguna hafi samband við Kristínu í s. 846-0922Myndir frá hátíðinni eru komnar í myndaalbúm. Fylgist með blogginu næstu daga þar sem sagt verður frá veislunni. </description>
Gamlar myndir úr starfi félagsins
      <description>Þessar skemmtilegu gömlu myndir bárust með góðum afmæliskveðjum frá Hjörleifi Guttormssyni. Við þökkum kærlega fyrir þær, en Hjörleifur tók þær allar sjálfur. Stjórn Skógræktarfélags Neskaupstaðar 1965 með Sigurði Blöndal skógarverði og Einari Hjörleifssyni sjö ára.Stjórn Skógræktarfélags Neskaupstaðar 1965 ásamtSigurði Blöndal skógarverði.Grisjun í Hjallaskógi 1972: Gunnar Ólafsson,Freyshólabræður Baldur og Bragi Jónssynir fagmenn. Kristín Guttormssonhorfir á.Gunnar Ólafsson í Hjallaskógi í október 1976Gunnar Ólafsson við grisjun í Hjallaskógi 1972</description>
Afmælishátíð í dag
      <description>Í dag eru sextíu ár líðin frá því Skógræktarfélag Neskaupstaðar var stofnað. Af því tilefni verður efnt til hátíðarhalda í Hjallaskógi í dag klukkan 18:00.Grill, skólakórinn syngur, stofnfélagar heiðraðir, gönguferðir, skólalundurinn afhentur o.fl. Kíktu á svæðið og hittu velunnara skógarins, gæddu þér á pylsum og taktu þátt í þessum skemmtilega viðburði með okkur. Allir velkomnir. Frá vinnukvöldi sl. þriðjudagskvöld. Velunnarar skógarins hjálpast að við að snyrta skóginn</description>
Kalla eftir vinum Hjallskógar
      <description>Ef einhver vill svitna aðeins í góðra manna félagsskap í  Hjallaskógi þá er aðstoðvel þegin í dag þriðjudag kl,17:30 með skóflu og hrífu í hönd og góða skapið.Það verðuraðeins að laga nýja fína stíginn okkar fyrir afmælishátíð.Kær kveðja Anna Bella</description>
Afmælishátíð í skóginum
      <description>Skógræktarfélag Neskaupstaðar verður 60 ára fimmtudaginn 28. ágúst n.k. Af því tilefni vill félagið bjóða félagsmönnum og öðrum velunnurum félagsins  til grillveislu í skóginum. Veislan hefst klukkan 18 fimmtudaginn 28. ágúst 2008 á nýju grillsvæði í Hjallaskógi. Endilega takið daginn frá. Gerum okkur glaðan dag saman í dásamlegu umhverfi skógarins. </description>
Fyrsta jarðaberið
      <description>Af því að sumir skoða ekki gestabókina, þá færi ég hér færslu þar frá Agli Arnaldi yfir á bloggið: Einar Gunnarsson frá Skógræktarfélagi Íslands sagaði í gær fyrir nýjum göngustíg,frá nýju brúnni neðst og uppá þjónustustíg.Þessi hluti er breiður.Frá þjónustustíg verður síðan mjórri stígur sem liggur uppá þann gamla efst.Fyrirhugað útigrillsvæði verður við þjónustustíginn innarlega,fyrir ofan og utan grenilundinn neðst.Ég át mitt fyrsta jarðarber úr skóginum í fyrradag.Það var með ekta Norðfjarðarbragði,dísætt og falleg ljósrauð slikja á því.Kveðja egill </description>
Heitasti staðurinn í bænum
      <description>Pistill frá Agli Arnaldi sem hefur verið að vinna í skóginum: Eitt af því sem við ætluðum að gera í sumar var að opna gönguleiðir.Nú eru komnar 3slíkar.Gul leið:Ef gengið er eftir stígnum meðfram Skógræktinni aðutanverðu,talsvert uppfyrir Gamla göngustíginn er skarð.Þar opnast inn á fallegtsvæði.Ef gengið er neðst í því,yfir lækinn þá er þar skarð og leið niður íFurulundinn við göngustíginn.(Hjá brúnni).Rauð leið:Ef gengið er eftir stígnum meðfram skógræktinni að innanverðu,þá erofarlega steypuklumpur úr gamalli gir'ðingu(?)Þar er skarð og ef gengið er beintúteftir koma grenigöng.Við endann á þeim er leið í gegnum druslubirkið sem liggurniður að grenigöngunum sem liggja niður á Gamla göngustíginn.Blá leið: Tengir samanRauða og gula.Þessar nýju leiðir er blautar.Ég hef eingöngu verið þarna í stígvélumog blotnaði ekki.Leiðirnar eru merktar með teipi og smáprikum sem eflaust máfjarlægja þegar fólk er farið að þekkja þær.Þeir sem fara þarna uppeftir verða ekkisviknir.Þarna ríkir fegurðin ein.Ég er að fara söður en kem aftur eftir eina tværvikur og vonast þá eftir fjörugum viðbrögðum.Kveðja egillFrá Kristínu: Vonandi tekst okkur að gera fallegt göngukort af skóginum fyrir afmælið. </description>
Fleiri tegundir í skóginn
      <description>Egill Arnaldur og Hálfdan fóru og keyptu bakkaplöntur af forvitnilegum tegundum: Úlfareyni,Hafþyrni,Himalajareyni,Fjallaþin,Hegg,Álm og  Súlublæösp. Það verður gaman að sjá hvernig þessar tegundir taka sig út í skóginum þegar fram líður. Sjá nánar færslu í gestabók frá Agli. </description>
Vinir jarðar
      <description>Eins og fram kemur í færslu í gestabók þá eru eru sjálfboðaliðar sem kalla sig Vinir jarðar að vinna í Hjallaskógi þessa dagana. Við þökkum þeim kærlega þeirra framlag. </description>
Vel lukkað vinnukvöld
      <description>Vinnukvöldið í gær lukkaðist vel. Veðrið var frábært, milt og kyrrt. Þátttakendur voru á öllum aldri og gaman að sjá ný andlit í skóginum. -þó ekki hafi mætt mikill fjöldi var afraksturinn mikill. Við í stjórninni erum mjög ánægð með afraksturinn og stefnum á að hafa kannski annað vinnukvöld áður en afmælisveislan verður haldin. Kærar þakkir til þeirra er lögðu hönd á plóg. </description>
Vinnukvöld n.k. fimmtudag- nú mæta allir
      <description>  Í ár er Skógræktarfélag Neskaupstaðar sextíu ára. Þann 28. ágúst 1948 var félagið stofnað og urðu stofnendur 95 menn eins og segir í fundargerðabók frá þeim tíma.   Markmið félagsins var frá upphafi og er enn að planta skógi og fegra umhverfið.   Árangur af starfi Skógræktarfélags Neskaupstaðar er mikill og líklegt að frumherjar þess hafi ekki séð fyrir þann mikla árangur sem raun ber vitni. Hjallaskógur er þar dýrmætasta framlagið, glæsilegur útivistarskógur við bæjardyrnar. Svo sannarlega ómetanleg lífsgæði og mikill fjársjóður fyrir samfélagið.  Undanfarin ár hefur verið lögð minni áhersla á útplöntun og uppgræðslu en meiri áhersla á að gera Hjallaskóg meira aðlaðandi sem spennandi útivistarsvæði fyrir alla bæjarbúa.   Í haust verður haldinn afmælisfagnaður í skóginum og þess vegna vill stjórn félagsins snyrta vel til í skóginum í sumar, laga stíga, grisja, koma upp grillaðstöðu og leiktækjum og margt fleira.   Til þess að ná sem bestum árangri þurfum við á hjálp bæjarbúa að halda.  Fimmtudaginn 5. júní n.k. 18:00 verður vinnukvöld í skóginum og væntum við þess að sjá sem flesta hjálpa okkur við að koma honum í afmælisbúning. Margar hendur vinna létt verk og það er skemmtileg og góð líkamsrækt að dunda í skóginum í hópi vina og fjölskyldu eina kvöldstund.    Sjáumst í skóginum - hann er okkar ómetanlega sameign.   F. h. stjórnar, Kristín Ágústsdóttir fráfarandi varaformaður    </description>
Skýrsla stjórnar - starfsárið 2007-2008
      <description>Eftirfarandi er skýrsla stjórnar, sem formaðurinn Anna Bergljót Sigurðardóttir flutti á aðalfundinum 22. maí sl.  Gott kvöld kæru félagar og velkomin. Nú ef við lesum yfir skýrslu stjórnar þá er það helst að sitjandi stjórn gefur kost á sér áfram með smávægilegum breytingum það er að segja að Kristín Ágústdóttir verður varamanneskja en Egill Arnaldur verður meðstjórnandi.  Því miður verð ég að tilkynna forföll Einars Gunnarssonar skógfræðings en hann komst ekki vegna veikinda hjá fjölskyldunni.En hann ætlaði að vera með flóðleik fyrir okkur sem við hefðum eflaust haft gaman af .Einari finnst mjög gaman að koma til okkar og er nýbúinn að kíkja á okkur og  finnst honum skógurinn okkar mjög fallegur.Honum finnst mjög leitt að komast ekki.En er tilbúinn að koma seinna ef við viljum og halda með okkur fund ef við viljum.  Starf okkar hefur verið að halda utan um skógræktina ,grisja, gera stíga og láta reynsluna aðeins leiða okkur áfram í því hvað við getum framkvæmt á ári hverju. Það  er að segja fjárhagslega og fá betri framtíðarsýn  á hvernig við viljum hafa hlutina. Okkur hefur tekist að halda vel utan um okkar fé og munum gera það áfram og vera dugleg að  leita eftir styrkjum eins og áður ,en við höfum  fengið góða og kærkomna styrki til framkvæmda sem við höfum nýtt okkur. En nú hefur verið samþykkt að þetta verði ár framkvæmdanna  og vonandi tekst okkur það áætlunarverk okkar í þeim efnum ,en Egill segir okkur betur af þessum áætlunum. Jólatrjáa salan var á sínum stað og við erum heldur að auka við okkur í sölu og þökkum björgunarsveitinni fyrir gott samstarf. Nú lokið var við þjónustustíg síðast liðið sumar og sáð í og er hann eins og grænn trefill þvert í gegnum skóginn.En enn er eftir að setja brúnna sem á að koma þar á sinn stað og vonandi verður það sem fyrst en það verður að fá að þorna vel fyrst til að valda sem  minnstum skaða.Einnig voru gerðar 3 brýr úr hlöðnu grjóti og sandi til að tengja inngöngu inn í skógarstíganna.Og þar sem hún er stærst er byrjun á nýjum fyrirhuguðum þjónustustíg. Settar voru 2 trébrýr til að brúa og fegra umhverfið. 2 góðir vinnudagar voru haldnir og margt gott fólk lagði hönd á plóg. 28.ágúst næst komandi verður Skógrætarfélgið 60 ára  og fyrirhuguð er afmælishátíð í tilefni þess, stefnt er að því að ljúka sem flestum verkefnum og gera skóginn sem snyrtilegastan fyrir þann tíma. Nokkrir af stofnendum félagsins eru búsettir hér í bænum og verður þeim sérstaklega boðið á afmælishátíðina.   Plöntun á berjarunnum víðsvegar í skóginum er fyrirhuguð og spennandi að prófa og munum við vonandi sjá  meira af fuglum og mönnum í skógræktinni vegan þessa.  Opnun  grillsvæðis finnst okkur spennandi vegna samveru og útivistar bæjarbúa og gaman að tengja það við nýtt tjaldsvæði. Vonandi eykur þetta  hróður bæjarins og Hjallaskógar í heild.  En verkefnin eru nánast ótæmandi og  allar hugmyndir og vinnufúsar hendur kærkomnar. Við vonum bara að við séum að gera þetta í sátt við umhverfið og í sátt við þá frumkvöðla sem byrjuðu að planta trjám hér í Hjallaskógi fyrir 60 árum og kannski sáu ekki endilega fram á að þetta svæði yrði að svona fallegum skógi sem raun ber vitni um.  Að lokum vil ég þakka fyrir mig og fyrir hönd stjórnar og bið ykkur að njóta vel í kvöld.                                       Anna Bergljót Sigurðardóttir.  </description>
Aðalfundur
      <description>Aðalfundur Skógræktarfélags Neskaupstaðar var haldinn í gær í Björgunarsveitarhúsinu á Nesi. Mæting var heldur dræm, enda fundurinn á sama tíma og Eurovision var send beint út í sjónvarpi. Engu að síður var þetta ágætis fundur. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa var nýja heimasíðan kynnt og farið yfir helstu verkefni sumarsins. Sitjandi stjórn gaf áfram kost á sér, með þeim breytingum þó að Kristín Ágústsdóttir kaus að fara úr aðalstjórn og gerast varamaður. Í hennar stað kom Egill Arnaldur Ásgeirsson sem áður var varamaður.</description>
Velkomin á heimasíðu Skógræktarfélags Neskaupstaðar